Gleðileg jól og farsælt komandi ár Prenta Rafpóstur
föstudagur 23. desember 2011
kort_8_15x15_ensk_10stVið í Vesturkoti óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Vonum að þið hafið það gott yfir hátíðarnar. 
 
Merry Christmas and a happy new year. Glædelig jul og godt nytår. Prettige kerstdagen en een Gelukkig Nieuwjaar. Hyvää joulua ja onnellista uutta vuotta. God jul och gott nytt år. Fröhliche Weihnachten und ein gutes neues Jahr. God jul og godt nytt år.
 
Frumtamningum lokið. Prenta Rafpóstur
föstudagur 2. desember 2011
img_8801Lokið er frumtamningum trippa í Vesturkoti. Við vorum með 9 trippi 3 vetra í frumtamningu og 4 trippi 4 vetra. Helmingur þessara trippa eru úr okkar ræktun en hinn helmingurinn eru trippi sem við eignuðumst þegar þau voru folöld. Það ánægjulega við þetta núna er að flest þessara trippa eru ágætlega efnileg en of fljótt er að fullyrða að í hópnum séu stórsnillingar. Í þessum hópi er bróðir Spuna sem Sæmundur heitir undan Sædyn og Stelpu efnilegur foli, mjúkur í hreyfingum, skref mikill og hágengur með frábæra lund. Í hópnum er vindótt hryssa sem heitir Salka líka úr okkar ræktun en hún er í eigu Kristínar Sölku. Hún er stór og öflug, viljug og verður mjög rúm á öllum gangi. Salka er undan Skelfingu frá Hofsstaðaseli og Stála frá Kjarri. Þá er líka í hópnum efnileg alhliða hryssa undan Heklu frá Miðsitju og Þóroddi frá Þóroddsstöðum. Þá erum við með 3 trippi úr ræktun Haraldar og Eindísar í Enni Þór og Dögg bæði undan Kjarna frá Auðsholtshjáleigu og svo stórefnileg alhliða hryssa frá Enni undan Dökkva frá Halakoti sú hryssa heitir Freyja. Fyrir utan Óla og Ásu sem verða hjá okkur enn í vetur þá hefur Þórarinn Ragnarsson verið hjá okkur í sumar og haust en mun fara á reiðkennarabrautina í Hólaskóla eftir áramótin. Inn á heimasíðuna okkar hafa nú bæst við fullt af hrossum undir Hross til sölu/Horses for sale.
 
Press Lesa meira for english.
 
Lesa meira...
 
Spuni verðlaunaður Prenta Rafpóstur
sunnudagur 20. nóvember 2011
spuni_-_verdlaunLaugardaginn 19 nóvember 2011 fór fram hin árlega ráðstefna um hrossarækt á Hótel Sögu í Reykjavík. Á ráðstefnunni voru haldin mörg fróðleg erindi m.a. fór Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur yfir hrossaræktarárið 2011. Þar bar hann saman árangur ársins 2011 við fyrri ár og fór yfir árangur einstakra hrossa. Á ráðstefnunni voru veitt verðlaun, hrossaræktarbú ársins voru kynnt og var Auðsholtshjáleiga verðlaunað sem hrossaræktarbú ársins 2011. Þá voru veitt verðlaun fyrir hæst dæmda kynbótahross ársins eftir að búið var að aldursleiðrétta dóminn. Spuni okkar í Vesturkoti hreppti þau verðlaun en hann fékk 8.92 í einkunn á Landsmótinu í sumar en einkunn hans eftir aldursleiðréttingu var hins vegar 9.07. Það var Hulda sem tók á móti þeim verðlaunum fyrir hönd okkar í Vesturkoti. Þá voru Þórði Þorgeirssyni veitt verðlaun fyrir að sýna hæst dæmda kynbótahross ársins og þau verðlaun fékk hann fyrir að sýna Spuna áverkalausan í kynbótadómi sem er forsenda fyrir því að hljóta þessi verðlaun. 

 
Daníel Ingi og Hörður sigruðu Prenta Rafpóstur
sunnudagur 14. ágúst 2011
img_8465 Suðurlandsmótið í hestaíþróttum fór fram um helgina. Daníel Ingi Smárason keppti þar á hestifrá okkur í Vesturkoti – Herði frá Reykjavík. Þeir félagar náðu frábærum árangri sigruðu bæði 100 metra skeiðið og 250 metrana á frábærum tímum þó svo að meðvindur hafi verið nokkur. 250 metrana fóru þeir á 21.66 og 100 metrana á 7,25. Það er ekki nema 3 mánuðir síðan að Daníel fékk Hörð til sín þá óviðráðanlegan að margra mati. Með einstakri yfirlegu og þjálfun hefur Daníel tekist að vinna hestinn á sitt band og er að ná stórkostlegum árangri með hestinn. Frá því að Daníel tók við hestinum hafa þeir félagar unnið hvert stórmótið á fætur öðru. Við í Vesturkoti erum Daníel þakklát og stolt af Herði og trúum því að þeir eigi eftir að gera enn betur.

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>